Til að keyra
kóðadæmið opnið zip skránna. Það þarf að breyta innri ip tölunni á WebSocket vefþjóninum sem keyrist innan forritsins yfir í þína ip tölu. Keyrið síðan Vefforrit appið, gerið nýtt vefforrit innan appsins og smelltu á velja möppu, veljið möppuna sem kom úr zip skránni og smellið á virkja hnappinn. Eftir það er hægt að sækja
index.html.zip sem er hægt að keyra á vefþjóni á innri ip tölu sem hefur aðgang að þinni innri ip tölu sem vefforritið er keyrt á. (Eða sömu ip tölu).
Hægt er að keyra nginx eða sambærilegan vefþjón með ákveðnum stillingum til að keyra vefþjónin með viðeigandi öryggisstillingum þ.e. "secure websockets".
Hægt er að læra að forrita í Kóða með því að skoða dæmin.
Það eru eins og er engin villuskilaboð sem koma upp ef að kóðinn hefur villur.
Það er eins og er engin skjölun fyrir aðferðir.
Fyrir spurningar eða aðstoð er bent á að hafa samband við þetta netfang:
sigginoob@icloud.com
Hægt er að nota forritið
Sublime Text til að fá rétta kóðalitun á íslenska skriftumálið "Kóði". Með því að setja þetta skjal:
Skilgreining fyrir Sublime Text. Í "user" möppuna fyrir Sublime Text.
Endingin NS er notuð sem er stytting fyrir netskrifta.